Innanhússhönnun umfram hið sjónræna.

Áður en sjónræn stefna er mótuð er rýmið skoðað út frá fólkinu sem notar það og því sem þar fer fram.

(Inngangur)

Hvert verkefni hefst á því að skilja samhengið, staðinn og fólkið sem notar rýmið. Í verkefnum fyrir einstaklinga er horft til þess hvernig rýmið verður notað dag frá degi og hvernig það getur fengið karakter sem endurspeglar fólkið sem þar dvelur.

Í verkefnum fyrir fyrirtæki eru þarfir, hegðun og ferðalag notenda skoðuð með aðferðum úr þjónustu- og upplifunarhönnun, sem liggja á mörkum nýsköpunar og innanhússarkitektúrs. Þannig koma í ljós tækifæri sem móta hugmyndafræði verkefnisins og skapa grunn að hönnuninni, þar sem innanhússarkitektúrinn samræmist þeirri þjónustu sem fyrirtækið býður upp á og þeirri upplifun sem ætlunin er að skapa.

Eldhúseyja úr marmara

Út frá þessu mótast skýr hugmynd sem stýrir rýmisskipulagi, efnisvali, lýsingu og húsgögnum. Hvert skref byggir á því síðasta og unnið er í nánu samtali við viðskiptavininn.

Útkoman er heildstætt rými sem styður þjónustuna sem það hýsir.

(Spurt og svarað)

Hvert verkefni hefst á því að skilja samhengið, staðinn og fólkið sem notar rýmið. Unnið er í nánu samtali við viðskiptavininn.

Skipulag, efnisval, lýsing og smáatriði, frá fyrstu drögum til fullbúins rýmis.

Horft er til þess hvernig rýmið verður notað dag frá degi og hvernig það getur fengið karakter sem endurspeglar fólkið sem þar dvelur.

Þarfir, hegðun og ferðalag notenda eru skoðuð með aðferðum úr þjónustu- og upplifunarhönnun, svo að innanhússarkitektúrinn samræmist þeirri þjónustu sem fyrirtækið býður upp á og þeirri upplifun sem ætlunin er að skapa.

Snemma í ferlinu, áður en verkefnið er fullmótað, til að skilgreina rýmið samhliða þjónustu og notkun.

Já, til dæmis um efnisval, liti, lýsingu eða uppröðun.