Upplifanir sem mótast í gegnum innanhússarkitektúr.

Studio Auður nálgast innanhússarkitektúr sem leið til að skapa heildstæða upplifun þar sem rýmið er ekki aðeins eitthvað sem við horfum á, heldur eitthvað sem við skynjum og upplifum. Arkitektúr, efnisval, andrúmsloft og frásögn fléttast saman til að móta rými með eigin karakter og skapa upplifun sem nær út fyrir rýmið sjálft. Hönnunin einkennist af sterkum andstæðum, ríkri efniskennd, óvæntum samsetningum og leik með ljós og skugga.

(Á bak við stúdíóið)

Auður Katrín, stofnandi og innanhússarkitekt FHI.

Auður er innanhússarkitekt með BA-gráðu frá Istituto Europeo di Design í Mílanó. Hún hefur starfað við fjölbreytt verkefni hérlendis og leggur áherslu á samspil innanhússarkitektúrs, listrænnar sköpunar og upplifunarhönnunar.

Auður Katrín situr við vegg í gluggabirtu

Auður hefur sérstakan áhuga á því hvernig umhverfi okkar hefur áhrif á líðan, hegðun og samskipti fólks. Hún lítur á innanhússarkitektúr sem tækifæri til að móta upplifun, vekja forvitni og skapa rými sem hafa áhrif umfram hið sjónræna. Hvert verkefni nálgast hún með það að leiðarljósi að endurhugsa hefðbundnar lausnir og skapa rými sem eru bæði ígrunduð og óvænt.

Auður starfar sjálfstætt undir merkjum Studio Auðar og vinnur í samstarfi við arkitekta, hönnuði og aðra fagaðila eftir umfangi og eðli hvers verkefnis.