Innanhússhönnun heimila

Hugleiðingar

2026

Morgunverðarkrókur

Hvað þarf heimili að gera fyrir fólkið sem býr þar, og hvenær er best að byrja að hugsa um það? Hugleiðing um innanhússhönnun einbýlishúsa.

Þegar fólk byggir eða gerir upp hús snýst samtalið oft fyrst um það hvernig það eigi að líta út. Hvaða flísar fara á baðherbergið, hvernig eldhúsinnréttingin á að vera á litinn, hvaða parket fer á gólfið, og það er skiljanlegt þar sem þetta eru ákvarðanir sem hægt er að sjá og snerta. En heimili er ekki aðeins eitthvað sem horft er á. Það er notað á hverjum degi, á morgnana þegar allir eru að koma sér út, síðdegis þegar heimanámið er unnið við eldhúsborðið og á kvöldin þegar fjölskyldan safnast saman, eða gerir það ekki.

Algengustu mistökin í innanhússhönnun heimila eru kannski einmitt þessi, að hugsa meira um það hvernig rýmið muni líta út en hvernig það verður notað. Fallegt eldhús sem enginn vill vera í, stofa sem er skipulögð í kringum sjónvarpið þó fjölskyldan vilji frekar sitja saman, baðherbergi sem rúmar ekki notkun þess á morgnana.

Hvað þarf heimili þá að gera fyrir fólkið sem býr þar? Og hvenær er best að byrja að hugsa um það?

Heimili sem styður daglegt líf

Gott heimili styður við daglegt líf fólksins sem þar býr. En það getur líka gert meira en það. Rými má sníða að því lífi sem fólk vill lifa, ekki aðeins því lífi sem það lifir í dag.

Vill fjölskyldan meiri samveru? Vill hún minni skjátíma? Á bóklestur að fá meira pláss í daglegu lífi? Slíkar óskir eru oft settar fram sem spurning um vilja eða aga, en skipulag heimilisins getur haft mikil áhrif á þær. Ef sófinn snýr að sjónvarpinu verður sjónvarpið miðpunktur stofunnar. Ef góður stóll stendur við glugga með góðri lýsingu og bókahillu innan seilingar verður auðveldara að grípa bók en símann. Ef eldhúsið er hannað þannig að fleiri en einn geta unnið þar í einu, eða setið og spjallað við þann sem eldar, verður matargerðin samverustund frekar en verk sem einn sinnir.

Arkitektinn Christopher Alexander og samstarfsfólk hans lýstu svipaðri hugsun í bókinni A Pattern Language frá 1977. Þar er meðal annars talað um að sameiginlegt rými eigi að vera í miðju þeirra rýma sem hópurinn notar, og að rýmum byggingar megi raða eftir því hversu opin eða persónuleg þau eru, frá innganginum og inn í það sem er mest prívat. Þetta kölluðu þau stigvaxandi nánd, eða intimacy gradient. Hugmyndin er einföld en áhrifin mikil. Skipulag sem fylgir því hvernig fólk vill umgangast hvert annað gerir heimilið auðveldara að búa í.

Að byrja á þarfagreiningu

Til að hanna heimili sem styður líf fólks þarf fyrst að skilja lífsstílinn. Þess vegna hefst ferlið á þarfagreiningu. Hverjir nota rýmið? Hvernig getur það stutt daglegt líf þeirra? Hvað vill fólkið fá út úr heimili sínu?

Út frá því er flæðið og skipulagið skoðað og lögð fram skipulagstillaga. Þegar hún hefur verið samþykkt tekur við efnisval og nánari útfærsla, hönnun innréttinga, lýsingar og húsgagna. Þrívíddarmyndir gera það mögulegt að sjá rýmin áður en framkvæmdir hefjast, og það er oft á því stigi sem fólk áttar sig á því hvernig það mun upplifa heimilið sitt.

Lokagögnin eru bæði sjónræn og tæknileg. Þrívíddarmyndir og efnispalletta sýna hvernig heimilið mun líta út og hvaða tilfinningu það mun vekja, og smíðateikningar sem hægt er að afhenda iðnaðarmönnum beint tryggja að hugmyndin skili sér alla leið.

Hvenær á innanhússarkitekt að koma inn?

Besti tíminn til að fá innanhússarkitekt að hönnun einbýlishúss er strax í upphafi. Þegar arkitekt teiknar húsið er gott að innanhússarkitekt sé með frá byrjun, því hann greinir líka flæðið um húsið og hvernig fólk mun nota það. Tvö augu sjá oft meira en eitt.

Náið samstarf frá upphafi auðveldar líka seinni stig hönnunarferlisins. Þegar búið er að hugsa fyrir notkuninni frá byrjun þarf síður að grípa til flókinna lausna seinna vegna einhvers sem ekki var hugsað út í. Staðsetning glugga sem passar ekki við eldhúsið, kastarar sem þegar er búið að gera ráð fyrir í loftið þar sem engin þörf er á þeim, geymsla sem hvergi er pláss fyrir. Slík atriði eru einföld á teikningu en geta orðið bæði dýr og flókin þegar húsið er risið.

Í eldri húsum er nálgunin önnur. Þar er unnið mikið með arkitektúrinn sem fyrir er, og af virðingu við hann, svo húsið sjálft fái að njóta sín sem best. Ný notkun og nýjar þarfir þurfa ekki að stríða gegn því sem gerir gamalt hús sérstakt. Oft er það einmitt þegar þetta tvennt fær að vinna saman sem heimilið verður persónulegt.

Algengar spurningar

Hvenær er best að fá innanhússarkitekt að hönnun einbýlishúss?

Strax í upphafi, helst á sama tíma og arkitekt teiknar húsið. Þá er hægt að hugsa fyrir flæði og notkun frá byrjun og forðast flóknar lausnir seinna í ferlinu.

Hvað felst í innanhússhönnun heimilis?

Ferlið hefst á þarfagreiningu og skipulagstillögu. Þegar hún hefur verið samþykkt tekur við efnisval og hönnun innréttinga, lýsingar og húsgagna.

Hvaða gögn fá húseigendur afhent?

Bæði sjónræn og tæknileg gögn, þrívíddarmyndir og efnispallettu ásamt smíðateikningum sem hægt er að afhenda iðnaðarmönnum beint.

Getur innanhússarkitekt unnið að eldra húsi?

Já. Í eldri húsum er unnið út frá arkitektúrnum sem fyrir er, af virðingu við hann, svo húsið fái að njóta sín sem best.

Studio Auður er íslensk innanhússarkitektastofa sem hannar rými fyrir einstaklinga og fyrirtæki með áherslu á einstaka notendaupplifun.

(Önnur hugleiðing)

Allar hugleiðingar