someone walking in black and white mode

Innanhússarkitekt eða gervigreind?

Getur gervigreind komið í stað innanhússarkitekts? Hugleiðing um gervigreind, innanhússarkitektúr og hvað felst í faglegri dómgreind við hönnun rýma.

Margir velta því fyrir sér hvað verður um störf þeirra nú þegar gervigreind er að ryðja sér til rúms og eru störf fólks í skapandi geiranum alls ekki undanþegin. Fólk í skapandi störfum er nú þegar farið að finna fyrir því að oft verður gervigreind frekar fyrir valinu og sjáum við það bersýnilega nú þegar til dæmis í auglýsingum og á umbúðum. Hvað innanhússhönnun varðar vekur þetta upp spurningar um virði hönnunar og gæði hennar, en einnig hvernig starf innanhússarkitekta breytist með tilkomu nýrrar tækni.

Gervigreind getur á nokkrum sekúndum lagt til liti, húsgögn og efni, búið til moodboard, gefið hugmyndir að rýmisskipulagi og sýnt okkur hvernig nánast hvaða rými sem er gæti litið út. Það sem áður krafðist tíma, sérhæfðra forrita og oft aðstoðar hönnuðar er að verða aðgengilegt nánast öllum. Það er því eðlilegt að spyrja hvaða virði maður fær út úr því að ráða innanhússarkitekt þegar hægt er að spyrja gervigreindina.

Svarið er ekki einfaldlega að manneskjan sé skapandi en vélin ekki. Gervigreind er nú þegar öflugt hönnunartæki og mun að öllum líkindum taka yfir hluta þeirrar vinnu sem hönnuðir hafa hingað til sinnt. Kannski vekur þetta því frekar upp spurningar um hvað hönnun sé í raun og veru.

Aðgangur okkar að hugmyndum hefur líklega aldrei verið meiri. Fyrst komu hönnunartímarit og bækur, síðan Pinterest, Instagram og óendanlegt magn mynda á netinu. Nú getur gervigreind búið til hugmynd sem er sérsniðin að okkur. Hægt er að biðja um hlýlegt eldhús með dökkum við, náttúrusteini og mjúkri lýsingu og fá margar sannfærandi tillögur á nokkrum sekúndum. Síðan má færa vaskinn, breyta viðartegundinni, gera rýmið minimalískara eða bæta við miðjarðarhafsáhrifum.

Kerfisbundin yfirlitsrannsókn frá 2025, sem skoðaði 161 fræðigrein, sýndi að tæplega 69% af notkun gervigreindar átti við fyrstu stig hönnunarferlisins. Myndir voru jafnframt langalgengasta form gagna í niðurstöðum. Gervigreind er því þegar orðin mjög öflug þegar kemur að því að spyrja hvað hægt sé að gera, en þegar möguleikarnir verða nánast óendanlegir verður önnur spurning þeim mun mikilvægari. Hvaða ákvörðun eigum við að taka?

 

Að taka ákvarðanir er mikilvægt hlutverk innanhússarkitekta

Ef gervigreind getur búið til þrjátíu sannfærandi tillögur að sama rýminu hefur hún leyst eitt vandamál en um leið skapað annað: Hvaða tillaga er rétt? Fallegasta myndin er ekki endilega besta lausnin.

Hönnuðir og innanhússarkitektar þurfa að vega saman fjölmarga þætti: hverjir nota rýmið og hvernig það er notað, flæði, birtu, hljóðvist, hlutföll og efnisval á sama tíma og huga þarf að endingu, kostnaði og tæknilegum forsendum. Þar að auki þarf að taka afstöðu til þess hvað eigi að varðveita, hverju eigi að breyta, hvaða karakter rýmið eigi að hafa og af hverju. Samhengið skiptir öllu máli, en sama lausn getur verið góð á einum stað og röng á öðrum.

Þarna liggur hluti af virði innanhússarkitektsins. Ekki endilega í því að geta framleitt fleiri hugmyndir en gervigreindin, heldur í faglegri dómgreind til að meta þær, þróa þær og hafna þeim sem eiga ekki við.

 

Að tryggja réttar forsendur

Það er þó annað sem gerist áður en byrjað er að velja lausnir. Það þarf að ákveða hvað á yfirhöfuð að leysa. Einstaklingur getur til dæmis komið til innanhússarkitekts og sagt að hann þurfi stærra móttökurými. Það væri hægt að byrja strax að teikna stærri móttöku og gæti gervigreind jafnvel búið til margar mismunandi útfærslur. En þegar rýmið og notkun þess eru skoðuð gæti komið í ljós að vandamálið sé ekki stærðin.

Vandamálið gæti verið að óljóst sé hvert gesturinn á að fara þegar hann kemur inn. Kannski liggja leiðir gesta og starfsfólks illa saman. Kannski er móttökuborðið staðsett á röngum stað. Eða kannski þarf fyrirtækið alls ekki hefðbundið móttökuborð. Ef forsendurnar eru rangar, þá gæti það leitt til þess að hönnuð sé mjög falleg lausn á röngu vandamáli. Hlutverk hönnuðarins er því ekki aðeins að finna svar, heldur að skilja hvað þarf í raun að leysa.

Þetta er ein ástæða þess að greining, samtal og skilningur á notendum og starfsemi eru mikilvægur hluti af hönnun rýma. Hönnunarferlið hefst því ekki endilega með teikningu, heldur með spurningu.

 

Rými er ekki ljósmynd

Gervigreind hefur einnig gert það auðveldara en nokkru sinni fyrr að búa til sannfærandi myndir af rýmum. En mynd af rými sýnir ekki hvernig fólk upplifir það.

Við upplifum innanhússarkitektúr með öllum skynfærunum. Við göngum inn í rýmið, hreyfum okkur um það og skynjum hlutföll þess. Við heyrum hvernig hljóð berst um það. Við finnum áferð efna og sjáum hvernig þau bregðast við birtu. Sólarljósið færist eftir veggjunum yfir daginn og útsýnið tengir innirýmið við það sem er fyrir utan. Efni sem líta nánast eins út á skjá geta haft gjörólíka áferð, þyngd og dýpt þegar þau eru komin í raunverulegt rými. Þess vegna snýst hönnun rýma ekki eingöngu um að ákveða hvernig staður á að líta út, heldur fyrst og fremst hvernig fólk upplifir hann.

 

Hvenær þarf innanhússarkitekt og hvenær ekki?

Ef spurningin er hvaða litur gæti farið vel með sófanum, hvernig mætti færa húsgögnin til eða hvaða lampi gæti hentað yfir borðstofuborðið getur gervigreind verið mjög gagnlegt verkfæri. Hún getur gert góða innanhússhönnun aðgengilegri og hjálpað fólki að sjá möguleika sem það hefði annars ekki komið auga á, sem er jákvæð þróun, en eftir því sem verkefnið verður flóknara breytist spurningin. Þegar verið er að breyta rýmisskipulagi, hanna fasta innréttingu, velja efni sem eiga að endast árum saman eða móta atvinnurými þar sem þarfir notenda, starfsemi og heildarupplifun þurfa að vinna saman, felst virðið ekki aðeins í aðgangi að góðum hugmyndum. Þá felst það í að vita hvaða ákvarðanir eigi að taka og hvernig þær tengjast hver annarri.

Svo kemur að þeim hluta hönnunarinnar sem sjaldnast sést á myndunum og felur í sér að samræma fjölda ólíkra þátta. Það þarf að ákveða málsetningar, innréttingar þurfa að ganga upp, hurðir þurfa að opnast og passa inn í hurðarop, lýsing þarf að vera staðsett miðað við notkun og húsgögn, efni þurfa að mætast, tæki þurfa pláss og tengingar. Kostnaður þarf að rúmast innan fjárhagsramma og lausnir þurfa að vera framkvæmanlegar. Að búa til sannfærandi hugmynd að rými er ekki það sama og að koma því í framkvæmd.

Gervigreind mun líklega breyta starfi innanhússarkitekta. Mögulega flysjar hún af efsta lag vinnu innanhússarkitekta og færir fagið einfaldlega nær kjarna hönnunar. Sá kjarni felst meðal annars í því að skilja fólk og hið mannlega, að lesa samhengi og sjá vandamál sem eru ekki augljós. Að taka afstöðu, geta útskýrt hvers vegna ein lausn er betri en önnur og bera ábyrgð á því að hún gangi upp þegar hún verður að raunverulegu rými.

Gervigreind getur orðið eitt öflugasta verkfæri sem innanhússarkitektar hafa fengið, en verkfæri breyta ekki endilega þörfinni fyrir dómgreind. Því fleiri svör sem verða aðgengileg, því verðmætari verður hæfileikinn til að spyrja réttu spurninganna.


Studio Auður er íslensk innanhússarkitektastofa sem hannar rými fyrir hótel, veitingastaði, heilsulindir, verslanir og vinnustaði með áherslu á einstaka notendaupplifun.