
Sjálfsmynd fyrirtækja í innanhússhönnun
Hvernig getur fyrirtæki styrkt sjálfsmynd sína og skapað sér sérstöðu í gegnum innanhússarkitektúr?
Þegar fyrirtæki eru að skapa sína sjónrænu sjálfsmynd er það oft gert með endurtekningu, til dæmis notast við sömu liti, húsgögn, efnisval og svipað skipulag. Það gerir það að verkum að fyrirtækin þekkjast nánast um leið og gengið er inn. En samræmi þarf ekki að þýða að allt sé eins.
Aesop, Soho House og Ace Hotel fara hvert sína leið í innanhússhönnun, en eiga það sameiginlegt að vinna út frá ákveðnu tungumáli sem túlkast á mismunandi hátt eftir staðsetningu og umhverfi rýmanna. Það sem ferðast á milli staða er því ekki endilega ákveðinn litur, stóll eða efni, heldur tungumálið á bak við rýmið. Fyrir innanhússarkitektinn felst áskorunin þá ekki í því að endurtaka ákveðið útlit, heldur að skilja hvaða einkenni eiga að haldast og hvað má breytast eftir samhengi.
Aesop, Soho House og Ace Hotel eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp skýra sjálfsmynd án þess að endurtaka sömu innanhússhönnunina frá einum stað til annars. Í stað þess að fylgja fastri uppskrift er unnið með sameiginlegt hönnunartungumál sem tekur mið af stað, sögu og umhverfi hverju sinni.
Aesop // staðurinn sem upphafspunktur
Aesop er ástralskt fyrirtæki sem framleiðir og selur húð-, hár- og líkamsvörur og rekur verslanir víða um heim. Fyrirtækið er sérstaklega þekkt fyrir að leggja mikla áherslu á arkitektúr og hönnun verslana sinna.
Verslanir Aesop geta verið mjög ólíkar innbyrðis. Fyrirtækið hefur unnið með fjölmörgum arkitektum og innanhússhönnuðum og leggur áherslu á að hver staðsetning taki mið af því samhengi sem hún verður hluti af, fremur en að sama útlitið sé flutt óbreytt á milli borga.
Í Jiyugaoka í Tokyo má til dæmis finna vísanir í járnbrautarsögu hverfisins og japanskan arkitektúr. Í Park Slope í Brooklyn sótti Frida Escobedo innblástur í brownstone-byggingar og múrverk hverfisins. Á öðrum stöðum verður byggingin sjálf, fyrri notkun hennar eða efni sem einkenna nærumhverfið upphafspunktur hönnunarinnar. Útkoman er því ekki mismunandi útgáfur af sömu verslun.
Samt er eitthvað kunnuglegt við þær. Áhersla á efniskennd, hófsemi, smáatriði og skynjun rýmisins kemur aftur og aftur fyrir. Upplifunin nær jafnframt út fyrir hið sjónræna og tekur til birtu, áferðar, lyktar og samskipta við gestinn.
Sérstaða Aesop felst því ekki í ákveðinni innréttingu sem hægt er að afrita, heldur í afstöðunni til innanhússhönnunarinnar.
Soho House // kunnuglegt án þess að vera eins
Soho House er alþjóðlegt net einkarekinna meðlimaklúbba sem upphaflega var stofnað í London fyrir fólk í skapandi greinum. Húsin sameina meðal annars veitingastaði, bari og vinnu- og samverurými og mörg þeirra bjóða einnig upp á gistingu.
Soho House notast við hönnunartungumál sem snýr að jafnvægi á milli þess sem er kunnuglegt og þess sem tilheyrir staðnum. Hvert hús tekur mið af borginni, byggingunni og menningunni í kring, en á sama tíma eru ákveðin einkenni sem ferðast á milli staða.
Í Soho House í Stokkhólmi varð byggingin sjálf einn helsti útgangspunktur innanhússhönnunarinnar. Húsið er í gamalli kirkju frá 1894 og stór hluti upprunalegrar byggingar var varðveittur, meðal annars hvelfd loft, súlur og málaðar veggskreytingar. Litapalletta innanhúss var meðal annars þróuð út frá litunum sem upprunalega voru í krikjunni og sænsk húsgögn, list og textílar fléttuð inn í heildina.
Á öðrum stöðum er sami hugsunarháttur túlkaður út frá allt öðru samhengi. Soho House í Kaupmannahöfn er til dæmis í fyrrum tollhúsi og ferjuhöfn frá 1937, þar sem danskt hönnunarsamhengi og litir bygginganna við Nyhavn urðu hluti af innanhússhönnuninni. Í Hong Kong var hins vegar lítið af einkennum í sjálfri háhýsabyggingunni til að vinna með og því var frekar leitað í nærumhverfið, staðbundið handverk, list og menningu borgarinnar.
Þrátt fyrir þetta er ákveðinn skyldleiki á milli staðanna. Soho House vinnur meðal annars ítrekað með ríkuleg efni, mynstur og liti, vintage-húsgögn, list og rými sem eru ætluð til dvalar og samveru. Markmiðið er því ekki að hvert hús líti eins út, heldur að skapa ákveðinn kunnugleika á meðan umhverfið fær að hafa áhrif á niðurstöðuna. Sjálfsmyndin felst þá ekki í því að endurtaka sömu innanhússhönnunina, heldur í því að ákveðin grunnhugsun sé nægilega skýr til að hægt sé að túlka hana á ólíkan hátt.
Ace Hotel // hluti af staðnum
Ace Hotel er alþjóðleg hótelkeðja með svokölluð lifestyle-hótel í nokkrum borgum víða um heim. Hótelin leggja áherslu á hönnun, menningu og tengsl við nærumhverfið og eru almenningsrýmin oft hugsuð sem samkomustaðir fyrir bæði gesti og heimafólk.
Ace Hotel hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á tengsl hótelsins við nærumhverfið og fólkið. Hótelið á ekki aðeins að standa í borginni heldur verða hluti af henni.
Í Toronto var unnið með iðnaðarsögu svæðisins, múrstein og karakter byggðarinnar. Sameiginleg rými hótelsins eru ekki eingöngu hugsuð fyrir gesti heldur einnig sem staðir þar sem fólk úr nærumhverfinu getur komið saman.
Í Aþenu tekur innanhússhönnunin hins vegar aðra stefnu og sækir meðal annars í grískan módernisma, strandmenningu og staðbundið handverk.
Sjónrænt geta hótelin því verið mjög ólík. Það sem tengir þau saman liggur frekar í því sem á að gerast í rýminu. Anddyrið er ekki aðeins móttaka heldur staður til að sitja, vinna, borða og hitta fólk. Heimafólk og hótelgestir blandast saman og mörkin milli hótelsins og borgarinnar verða óskýrari.
Sjálfsmyndin birtist þannig ekki aðeins í því hvernig rýmið lítur út, heldur líka í því hvernig það hegðar sér.
Sameiginlegt tungumál
Þessi þrjú fyrirtæki fara ólíkar leiðir en vekja sömu spurninguna. Hvað þarf í raun að vera eins til þess að við skynjum samhengi á milli staða?
Aesop vinnur með stað, efni og skynjun. Soho House með kunnugleika, dvalargæði og staðbundinn karakter. Ace Hotel með samfélag og tengsl við nærumhverfið.
Í öllum þremur tilfellum er hægt að breyta litum, húsgögnum, efnum og jafnvel heildarásýnd rýmisins án þess að missa þráðinn. Þar verður hlutverk innanhússarkitektsins annað en að yfirfæra fyrirfram ákveðið útlit yfir á nýtt rými. Innanhússhönnunin verður þess í stað túlkun á sérstöðu fyrirtækisins í samhengi við staðinn.
Studio Auður er íslensk innanhússarkitektastofa sem hannar rými fyrir hótel, veitingastaði, heilsulindir, verslanir og vinnustaði með áherslu á einstaka notendaupplifun.

