
Réttlæting fagurfræðinnar
Hvenær hættum við að líta á fegurð sem sameiginleg gæði og fórum að líta á hana sem munað sem þarf að réttlæta fjárhagslega?
Í fjölbýlishúsi við Ljósvallagötu í Reykjavík, byggðu árið 1950, má finna ýmis smáatriði sem vekja athygli í samanburði við margt sem byggt er í dag. Lofthæðin er um 2,7 metrar, gluggalistar og póstar eru útskornir og skrautlistar í loftum. Handriðið í sameigninni er úr svartmáluðu járni með skreytingum milli rimlanna. Ofan á því liggur mjúklega mótaður handlisti úr timbri sem fylgir handriðinu niður stigann og við hvern stigapall eru tveir gluggar þar sem birtan flæðir inn um skreytt gler í alls konar litum. Þetta eru atriði sem hafa lítið með grundvallarvirkni hússins að gera, en einhver taldi engu að síður þess virði að leggja tíma og vinnu í.
Slíkt dæmi þarf auðvitað að setja í samhengi. Vandaðar byggingar frá þessum tíma segja ekki endilega sögu þess hvernig almenningur bjó og efnahagslegur ójöfnuður var mikill. Það væri of einfalt að horfa á fallegustu byggingar fortíðarinnar og álykta að áður hafi einfaldlega verið byggt betur.
En þær vekja engu að síður áhugaverða spurningu um hvernig það sem við teljum þess virði að leggja í byggingar hefur breyst.
Í dag búum við í mun efnameira samfélagi. Við höfum meiri tækni, öflugri framleiðsluaðferðir og aðgang að fleiri efnum og lausnum en fólkið sem byggði þessi hús hafði. Samt eru mörg þeirra atriða sem einkenna vandaðar eldri byggingar nú gjarnan flokkuð sem kostnaðarsamir aukahlutir. Aukin lofthæð kostar. Sérsmíði kostar. Handverk kostar. Smáatriðin kosta. Við urðum ríkari, en hvers vegna varð fegurðin þá of dýr?
Manneskjan hefur lagt áherslu á fegurð svo langt aftur sem saga hennar nær. Leirmunir hafa verið skreyttir þótt þeir hefðu gegnt sama hlutverki án skrauts. Mynstur hafa verið ofin í textíl, timbur útskorið, veggir og loft máluð og nytjahlutir mótaðir langt umfram það sem virkni þeirra krafðist. Þetta hófst ekki þegar samfélög urðu rík. Þvert á móti virðist löngunin til að gera umhverfið ekki aðeins nothæft heldur fallegt vera djúpstæð í mannlegri menningu. Það vekur spurningu um hvort fegurð sé í raun sá óþarfi sem hún verður stundum að í samtímanum.
Í innanhússarkitektúr er tiltölulega auðvelt að færa rök fyrir því sem hægt er að mæla. Kostnaður á fermetra, nýtingarhlutfall, orkunotkun, ending og viðhald eru allt stærðir sem hægt er að reikna og bera saman. Erfiðara er að setja tölu á þá upplifun að ganga daglega inn í rými sem hefur verið mótað af alúð. Hvert er eiginlega verðmæti þess?
Þegar allt þarf að skila einhverju
Jafnvel fegurð er gjarnan réttlætt út frá því hvað annað hún getur gert fyrir okkur. Fallegt og vandað umhverfi verður auðveldara að verja ef hægt er að sýna fram á að það bæti líðan, dragi úr streitu, auki framleiðni, bæti námsárangur eða hækki verðmæti fasteigna. Það er ekkert rangt við að rannsaka slík tengsl. Byggt umhverfi hefur áhrif á okkur og mikilvægt er að skilja þau áhrif betur. En hvers vegna þarf fegurðin þessa réttlætingu? Hvað ef fallegt hlutfall, vel staðsettur gluggi eða handunnið smáatriði hefur enga fjárhagslega arðsemi sem hægt er að sýna fram á? Er það þá minna virði?
Fegurð hefur lengi verið eitt af viðfangsefnum heimspekinnar og meðal annars verið rædd sem verðmæti í sjálfu sér, fremur en eingöngu leið að einhverju öðru. Kannski er því ekki alltaf nauðsynlegt að spyrja hvað fegurðin gerir fyrir okkur. Kannski má líka spyrja hvort upplifunin af henni hafi gildi í sjálfri sér.
Það sem hreyfir við okkur
Sum rými vekja viðbrögð sem erfitt er að skýra eingöngu út frá virkni eða notagildi. Gömul kirkja á Ítalíu getur til dæmis vakið ró, forvitni og jafnvel lotningu. Ljósið færist eftir yfirborðum, efnin bera með sér ummerki tímans og smáatriði sem einhver vann fyrir löngu halda áfram að hafa áhrif á fólk sem veit jafnvel ekkert um sögu þeirra. Slík upplifun getur nálgast það sem í fagurfræði hefur verið kallað hið háleita, eða the sublime: tilfinningu sem nær út fyrir það að eitthvað sé einfaldlega fallegt.
Náttúran hefur sérstakan mátt til að vekja slíka tilfinningu. Fjall, haf eða víðátta getur kallað fram upplifun af einhverju stærra. Byggingar eru annars eðlis, enda manngerðar, en einstaka sinnum geta þær nálgast sömu tilfinningu. Kannski liggur hluti áhrifanna einmitt í því að þær eru manngerðar. Einhver hugsaði um hlutföllin, einhver valdi glerið, einhver skar út smáatriðin, lagði steininn eða ákvað hvernig ljósið skyldi berast inn. Í slíkum rýmum verðum við ekki aðeins vör við niðurstöðuna. Þar verða tíminn, handverkið og sú alúð sem lögð hefur verið í verkið hluti af upplifuninni.
Fegurð þarf ekki alltaf að kosta
Þetta þýðir þó ekki að meiri kostnaður leiði sjálfkrafa til meiri fegurðar. Handgerður hlutur frá litlum markaði getur verið fallegri en margfalt dýrari hlutur frá þekktu tískuhúsi. Einföld lausn getur verið fallegri en flókin. Dagsbirta á vegg, gott hlutfall eða vel valið efni getur haft meiri áhrif en kostnaðarsamt yfirborð. Kannski snýst hún að minnsta kosti að hluta um athygli, að velja hvað skiptir máli og gera það vel.
Í því samhengi er áhugavert að skoða minimalisma og innanhússhönnun. Hann er stundum túlkaður sem leit að því að fjarlægja allt sem er óþarft. En einfaldleiki þarf ekki að vera afleiðing þess að leggja minna í hlutina. Í verkum arkitektsins Mies van der Rohe er lítið sem truflar, en það sem eftir stendur byggir á mikilli nákvæmni í hlutföllum, efnisvali, samskeytum og útfærslu. Að gera minna getur krafist þess að það sem gert er sé gert enn betur. Minimalismi snýst því ekki endilega um að leggja minna í rýmið, heldur um að velja af meiri nákvæmni hvað fer þar inn.
Hvenær varð „nóg“ markmiðið?
Bygging getur uppfyllt allar reglugerðir. Hún getur verið örugg, aðgengileg, orkunýtin og hagkvæm. Hún getur gert allt sem hún á að gera. En er það endilega nóg? Margt af því sem gerir rými einstök er að það var lagt örlítið meira í þau en endilega þurfti. Þegar hægt er að setja nákvæma tölu á kostnaðinn en ekki verðmætið er auðvelt að strika verðmætið út.
En það er áhugavert að samfélag sem hefur aldrei haft meiri getu til að skapa skuli eiga jafn erfitt og raun ber vitni með að réttlæta það sem ekki er auðvelt að mæla.
Fegurð þarf kannski ekki alltaf að gera okkur afkastameiri. Hún þarf ekki endilega að auka sölu, fasteignaverð eða skilvirkni. Og ekki þarf allt sem lagt er til samfélagsins að skila mælanlegum arði. Megum við velja að eyða tíma og peningum í fegurð einfaldlega vegna þess að hún gerir lífið okkar ríkara? Ef við höfum aldrei haft meiri tækni, meiri framleiðslugetu og meiri efnisleg verðmæti, hvers vegna upplifum við þá svo oft að við höfum ekki efni á fegurð?
Studio Auður er íslensk innanhússarkitektastofa sem hannar rými fyrir hótel, veitingastaði, heilsulindir, verslanir og vinnustaði með áherslu á einstaka notendaupplifun.

