Hvað gerir innanhússarkitekt?

Hugleiðingar

2026

Birta sem fellur á sérsmíðaða hurð.

Hvert er hlutverk innanhússarkitekts, hvernig er það frábrugðið starfi arkitekts og stílista, og hvað felst í vinnunni sem sést ekki á myndunum?

Svarið fer að hluta eftir því hvaða innanhússarkitekt er spurður. Áherslur eru ólíkar og verkefnin fjölbreytt, allt frá einu baðherbergi upp í heilt hótel. En í rauninni mætti segja að innanhússarkitektúr sé einskonar samsetning af sálfræði og list.

Innanhússarkitekt skapar umhverfi sem hefur djúpstæð áhrif á líf fólks, því fólk býr, vinnur og dvelur inni í verkinu. Þess vegna nægir ekki að rýmið sé fallegt. Það þarf að styðja það sem þar fer fram og það þarf að ganga upp í raunveruleikanum, niður í minnstu smáatriði.

Sálfræði og list

Sálfræðihliðin snýst um að skilja fólkið sem notar rýmið. Hverjir nota það, hvernig og til hvers? Hvar liggja leiðir fólks, hvar staldrar það við og hvað þarf rýmið að gera til að daglegt líf eða rekstur gangi vel? Þessi greining er grunnurinn að skipulagi rýmisins, hvort sem um er að ræða heimili eða fyrirtæki.

Listræna hliðin snýst um að skapa heild sem hefur karakter og vekur tilfinningu. Hlutföll, efni, birta, litir og áferð eru verkfæri innanhússarkitektsins til að móta upplifun. Á heimilum getur það þýtt rými sem ýtir undir samveru eða ró. Í fyrirtækjum getur það þýtt rými sem endurspeglar það sem fyrirtækið stendur fyrir og gerir upplifun viðskiptavina og starfsfólks betri.

Lögverndað starfsheiti

Innanhússarkitekt er lögverndað starfsheiti á Íslandi. Í lögum nr. 8/1996 um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum er það skráð sem „húsgagna- og innanhússarkitektar (húsgagna- og innanhússhönnuðir)“. Samkvæmt lögunum eru innanhússarkitekt og innanhússhönnuður því sama starfsheitið.

Rétt til að nota starfsheitið hafa aðeins þeir sem hafa lokið fullnaðarprófi í greininni og fengið leyfi ráðherra. Atvinnuvegaráðuneytið veitir leyfið að fenginni umsögn viðkomandi fagfélags. Innanhússarkitektar sem eru aðalfélagar í Félagi húsgagna- og innanhússarkitekta nota skammstöfunina FHI með starfsheitinu.

Arkitekt, innanhússarkitekt og stílisti

Arkitekt og innanhússarkitekt vinna oft saman, en hlutverkin eru ólík. Arkitekt er hönnuður byggingarinnar sjálfrar og hefur leyfi til að leggja inn aðaluppdrætti. Innanhússarkitekt vinnur innan byggingarinnar og sinnir meiri smáatriðavinnu. Skipulag rýma, innréttingar, efnisval, lýsing og húsgögn eru á hans borði, og hvernig þetta allt vinnur saman.

Stílisti er ekki lögverndað starfsheiti og hver sem er getur kallað sig stílista. Stílisti vinnur fyrst og fremst með útlit og uppstillingu, til dæmis val á húsgögnum, textíl og smáhlutum. Það getur skipt miklu máli, en það er annað starf en að skipuleggja og útfæra rými þannig að það gangi upp í smíði.

Vinnan sem sést ekki á myndunum

Sá hluti starfsins sem kemur fólki mest á óvart er skipulagið og tæknivinnan í kringum verkið. Innanhússarkitektúr er eins og listaverk sem fólk lifir inni í, og þess vegna nægir ekki að skapa hugmyndina. Það þarf að útfæra hana þannig að allt gangi upp í smíðinni.

Gríðarlega mikill tími innanhússarkitekts fer í teikningar. Allt þarf að teikna rétt upp í grunnmyndum, ásýndum og sniðum, með réttum staðsetningum og málsetningum. Uppbygging veggja þarf að vera skilgreind og innréttingar þurfa að passa í rýmið upp á millimetra. Teikningarnar þurfa að vera þannig úr garði gerðar að iðnaðarmenn geti unnið beint eftir þeim.

Við bætist allt sem þarf að velja inn í verkefnið. Fjöldi ákvarðana er ótrúlega mikill og þær ná allt niður í það hvaða brautir eiga að vera í skúffum innréttingarinnar, hvaða lamir, hvaða rofar og hvar hver ljósgjafi er staðsettur. Hver ákvörðun hefur áhrif á aðrar, og hlutverk innanhússarkitektsins er að halda utan um heildina svo útkoman verði sú sem til var ætlast.

Algengar spurningar

Hver er munurinn á innanhússarkitekt og innanhússhönnuði?

Samkvæmt lögum nr. 8/1996 er um sama starfsheiti að ræða. Bæði heitin eru lögvernduð og aðeins þeir sem hafa lokið fullnaðarprófi og fengið leyfi ráðherra mega nota þau.

Hver er munurinn á arkitekt og innanhússarkitekt?

Arkitekt hannar bygginguna og leggur inn aðaluppdrætti. Innanhússarkitekt vinnur innan byggingarinnar, með skipulag rýma, þó oft í samstarfi við arkitektinn ef um nýbyggingu er að ræða, innréttingar, efnisval, lýsingu og húsgögn.

Er stílisti það sama og innanhússarkitekt?

Nei. Stílisti er ekki lögverndað starfsheiti og vinnur fyrst og fremst með útlit og uppstillingu. Innanhússarkitekt skipuleggur og útfærir rýmið tæknilega, með teikningum sem hægt er að smíða eftir.

Vinnur innanhússarkitekt bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki?

Já. Verkefnin geta verið allt frá einu eldhúsi eða baðherbergi á heimili upp í hótel, veitingastaði, verslanir og skrifstofur.

Studio Auður er íslensk innanhússarkitektastofa sem hannar rými fyrir einstaklinga og fyrirtæki með áherslu á einstaka notendaupplifun.

(Önnur hugleiðing)

Allar hugleiðingar